Foreldrafélag

Foreldrar

Hlutverk foreldrafélagsins er að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla. Allir forsjáraðilar nemenda í skólanum teljast félagar í foreldrafélaginu.

Stjórn Foreldrafélags Setbergsskóla

Í stjórn foreldrafélags Setbergsskóla eru 7 fulltrúar. 5 eru kosnir af forsjáraðilum á aðalfundi auk tveggja varamanna, síðan eru 2 fulltrúar kosnir af starfsfólki og kennurum skólans og skólastjóri. Skólastjórnendur og fulltrúar kennara og starfsfólks funda með stjórn foreldrafélags svo oft sem þurfa þykir en að jafnaði þrisvar til fjórum sinnum á hvorri önn.

Stjórn 2023–2024

Nafn Hlutverk
Vala Steinsdóttir Gjaldkeri
Valgerður Þórunn Bjarnadóttir Ritari
Kristín Blöndal Meðstjórnandi
Árni Freyr Guðmundsson Meðstjórnandi
Ásta Margrét Guðmundsdóttir Fulltrúi kennara
Njóla Jónsdóttir Fulltrúi starfsfólks

Lög

  • 1. grein

    Félagið heitir: Foreldrafélag Setbergsskóla, Hafnarfirði.

  • 2. grein

    Félagar eru forsjáraðilar nemenda og starfsfólks skólans.

  • 3. grein

    Markmið félagsins er að vinna að heill og hamingju nemenda og starfsfólks skólans og styrkja skólann í hvívetna og efla samvinnu heimila og skóla. Markmiði sínu hyggst félagið ná með því að veita skólanum aðstoð vegna ákveðinna verkefna og starfa í skólanum, að koma á umræðufundum um skóla- og uppeldismál almennt í samráði við skólann, að koma fram með óskir um breytingar á starfi skólans, að fjalla um félagslega aðstoð barna í skólahverfinu.

  • 4. grein

    Stjórn félagsins skipa 7 menn, 4 kosnir af forsjáraðilum á aðalfundi, 2 kosnir af starfsfólki skólans auk skólastjóra eða staðgengils hans. Þá skal einnig á aðalfundi kjósa 2 varamenn. Formaður skal vera úr hópi forsjáraðila, en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Stjórn félagsins skal halda að minnsta kosti 4 fundi árlega. Hún fylgist með starfi skólans og starfsaðstöðu, undirbýr samstarf heimila og skóla, boðar fundi á skólaárinu og afgreiðir samþykktir þeirra. Öll stjórnin skal kosin til eins árs í senn. Síðan skal hún koma sér saman um að minnsta kosti 1 úr hópi foreldra og 1 úr hópi kennara sitji áfram næsta skólaár, þannig að ekki verði fleiri en 4 kosnir árlega

  • 5. grein

    Aðalfund skal halda fyrir 15. október ár hvert og skal hann boðaður með minnst hálfsmánaðar fyrirvara.

    Dagskrá aðalfundar skal vera:

    • Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári
    • Skýrsla foreldraráðs á liðnu ári
    • Gjaldkeri gerir grein fyrir fjárhagsafkomu félagsins og leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins til samþykktar
    • Kosning stjórnar
    • Kosning fulltrúa í foreldraráð Setbergsskóla
    • Kosning skoðunarmanns
    • Lagabreytingar
    • Önnur mál
  • 6. grein

    Stjórnin skal koma á samstarfi foreldra innan árganga með skipun 2 bekkjafulltrúa úr hverri bekkjadeild. Ætlast er til að fulltrúar innan árgangs hafi með sér samstarf. Fulltrúar skulu tilnefndir eigi síðar en á fyrsta foreldradegi vetrarins.

  • 7. grein

    Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og ræður einfaldur meirihluti atkvæða fundarmanna. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórninni fyrir aðalfund.

  • 8. grein

    Félagið eða stjórn þess skal ekki hafa afskipti af vandamálum, sem upp kunna að koma milli einstakra forsjáraðila og starfsmanna skólans.

  • 9. grein

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

  • 10. grein

    Lögum þessum var síðast breytt á aðalfundi foreldrafélagsins þann 4. nóvember 2002.

Fundargerðir

Skólaárið 2021–2022