Náms- og starfsráðgjafi vinnur með einstaklingum eða hópum af nemendum, foreldrum og kennurum. Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er að standa vörð um velferð allra nemenda, styðja þá og hjálpa við allt sem varðar nám, skólavist, framhaldsnám og starfsval. Náms-og starfsráðgjafi er trúnaðarmaður nemenda, gætir hagsmuna þeirra og leitar lausna í málum þeirra. Hægt er að hringja á skrifstofu skólans í síma 555 1011 og panta viðtalstíma eða senda á kolbrun@setbergsskoli.is. Helstu verkefni náms- og starfsráðgjafa Persónulegur og félagslegur stuðningur við nemendur þannig að þeir eigi auðveldara með að ná settum markmiðum í náminu. Að veita nemendum ráðgjöf og fræðslu um náms- og starfsval. Að leiðbeina nemendum um vinnubrögð í námi. Móttaka nýrra nemenda. Aðstoða nemendur við að gera sér grein fyrir eigin áhugasviðum og meta hæfileika sína raunsætt miðað við nám og störf. Náms- og starfsráðgjafi vinnur í nánu samstarfi við foreldra eftir því sem við á og hefur samráð við aðra sérfræðinga innan og utan skólans og vísar málum einstaklinga til þeirra eftir því sem við á. Náms- og starfsráðgjafi er bundinn þagnarskyldu um einkamál nemenda, að undanskildum ákvæðum í lögum um barnavernd. Gagnlegar upplýsingar Tímaáætlanir Vikuskipulag Mánaðarskipulag Nám og störf Háskólar Innritun í framhaldsskóla Nám og störf erlendis Nám og störf á Íslandi Framhaldsskólar Stærðfræðivefurinn rasmus.is Verknám (namogstorf.is) Viltu vera skiptinemi? Næsta skref Fróðleikur Sjálfsmynd og líkamsmynd Netöryggi og samskipti á netinu