Nám og kennsla

Frístundaheimilið Krakkaberg

Frístundaheimilið Holtasel er fyrir börn í 1. til 4. bekk. Þar er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur fyrir nemendur.

Skráning í frístund

Þú skráir barnið á frístundavefnum Völu. Best er að senda inn skráninguna fyrir 15. júní, eftir það fara umsóknir á biðlista og eru ekki afgreiddar fyrr en í ágúst. Skráning gildir í eitt skólaár í senn (ágúst–júní). Sjá nánar um frístund á vef Hafnarfjarðar.

Opnunartími

Krakkaberg opnar eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur og er opið til 17. Krakkaberg er lokað í vetrarfríi auk þess sem Holtasel lokar tvisvar yfir árið vegna skipulagsdaga.

Erfitt getur verið að ná í starfsfólk Krakkabergs á milli 13:00 og 14:30 og er því best að koma skilaboðum til starfsfólks fyrir þann tíma.

Frístundaakstur

Börn í 1.–4. bekk fá fylgd í frístundaakstur sem keyrir þau á æfingar hjá íþróttafélögum bæjarins. Skrá þarf barn sérstaklega í frístundaaksturinn í Völu. Aksturinn er ókeypis og komast öll skráð börn að, líka börn sem eru ekki skráð í frístundaheimili. Sjá nánar um frístundaakstur á vef Hafnarfjarðar.