Stoðþjónusta

Nám og kennsla

Berg - sérdeild

Í Setbergsskóla er sérdeild fyrir nemendur með einhverfu eða einhverurófsröskun.

Berg starfar eftir hugmyndafræði skipulagðrar kennslu (TEACCH). Skipulögð kennsla virkjar sjálfstæði einstaklingsins og stuðlar að því að hann verði öruggur, líði vel, sé fær um að taka ákvarðanir og sýna frumkvæði. Skipulögð kennsla er kerfi sem skipuleggur aðstæður, notar verkefni við hæfi og hjálpar nemandanum að skilja til hvers er ætlast af honum.

Aðalmarkmið Bergs

  • skipulagt námsumhverfi
  • kennsla námsgreina samkvæmt einstaklingsnámskrá sem er gerð fyrir hvern nemanda
  • sjónrænt dagskipulag við hæfi hvers nemanda
  • markvisst skipulag sem stuðlar að því að efla sjálfstæði nemenda
  • hver nemandi hefur sitt boðskiptakerfi
  • nám tengt áhuga, upplifun og reynslu
  • virkt foreldrasamstarf og teymisvinna
  • fylgja eftir ytra skipulagi, svo sem skólaakstri, samskiptum við Krakkaberg, Setrið og Klettinn

Unnið er markvisst að því að nemendur innan Bergs tengist samnemendum, meðal annars með því að nemandi læri í sínum umsjónarbekk og bjóði bekkjarfélögum í

Berg. Þetta stuðlar að eflingu félagsþroska og gagnkvæmri virðingu.

Umsókn í Berg 

Umsókn um nám í sérdeild er alltaf háð vilja og samþykki foreldra en er einnig byggð á faglegu mati heimaskóla nemenda. Foreldrar eða forsjáraðilar sækja um nám í sérdeildinni með því að fylla út umsókn um sérdeild og skila inn til Lækjarskóla eða beint til Mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur rennur út 1. apríl á hverju ári. Einnig er hægt að taka inn nemendur á öðrum tímum skólaársins ef inntökunefnd metur svo.

Brúin

Í skólanum er sérstakt brúarteymi þar sem unnið er í sameiningu til að auka farsæld barna og fjölskyldna þeirra. Í teyminu situr fagfólk á vegum skólans, ásamt ráðgjöfum frá fjölskyldu- og barnamálasviði og mennta- og lýðheilsusvið. Brúarteymið kortleggur stöðu barnsins og leitar sameiginlegra lausna til að styðja við barnið og fjölskyldu.

Heilsugæsla

  • Skólahjúkrunarfræðingur: Carolin K. Guðbjartsdóttir
  • setbergsskoli@heilsugaeslan.is
  • Viðverutími
  • Þriðjudaga 8–12
  • Miðvikudaga 8–16
  • Fimmtudaga 8–16

Heilsuvernd skólabarna í Setbergsskóla er á vegum Heilsugæslunnar í Sólvangi. Heilsuverndin er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi.

Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.

Helstu áherslur í heilsuvernd nemenda eru:
  • Fræðsla, forvarnir og heilsuefling.
  • Bólusetningar.
  • Skimanir.
  • Viðtöl um heilsu og líðan.

Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu og Embættis landlæknis um heilsuvernd grunnskólabarna. Sjá nánar á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Heilbrigðisfræðsla

Skipulögð heilbrigðisfræðsla er veitt í öllum árgöngum og er áherslan á að hvetja til heilbrigðra lífshátta. Eftir fræðslu fá foreldrar upplýsingar í tölvupósti um fræðsluna og gefst þá kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig hægt er að nýta það í daglegu lífi.

Markmið hverrar fræðslu eftir árgöngum er hægt að sjá á Heilsuveru.

  • 1. bekkur

    „Líkaminn minn“ – forvörn gegn kynferðislegu ofbeldi og hjálmanotkun.

  • 2. bekkur

    Tilfinningar.

  • 3. bekkur

    Verkefnabók um 6H heilsunnar (Hamingja, Hollusta, Hreinlæti, Hreyfing, Hvíld).

  • 4. bekkur

    Kvíði og slysavarnir.

  • 5. bekkur

    Samskipti.

  • 6. bekkur

     Kynþroski og endurlífgun.

  • 7. bekkur

    Bólusetningar.

  • 8. bekkur

    Sjálfsmynd og samskipti, hugrekki og endurlífgun.

  • 9. bekkur

    Kynheilbrigði og bólusetning.

  • 10. bekkur

    Geðheilbrigði, endurlífgun og ábyrgð á eigin heilsu.

Skimanir

Skimað er fyrir ákveðnum heilbrigðisvandamálum í 1., 4., 7. og 9. bekk. Þær felast í mælingu á hæð, þyngd og sjónskerpu. Nemendur í öðrum árgöngum eru skimaðir eftir þörfum. Ef frávik reynist í skimun er haft samband við forsjáraðila.

Heilsueflandi viðtöl um lífsvenjur og líðan

Þegar skimanir fara fram í 1., 4., 7. og 9. bekk ræðir skólahjúkrunarfræðingur við nemendur um líðan og lífsvenjur. Markmið viðtalanna er að styrkja vitund nemenda um eigið heilbrigði og líðan. Ef vart verður við vanlíðan eða áhyggjur er gripið til úrræða.

Bólusetningar

Bólusetningum er ætlað að verja einstaklinginn gegn alvarlegum smitsjúkdómum. Í 7. bekk er bólusett við mislingum, hettusótt og rauðum hundum (1 sprauta) og HPV (Human papilloma veirum) sem geta valdið leghálskrabbameini. HPV-bólusetning er gefin tvisvar með 6 mánaða millibili. Í 9. bekk er bólusett við barnaveiki, stífkrampa, kíghósta og mænusótt (ein sprauta).

Fyrir bólusetningu fá foreldrar tölvupóst með upplýsingum um tímasetningu. Það er á ábyrgð foreldra að láta bólusetja börn sín. Gott er að nemendur komi með bólusetningarskírteini sín í skólann þegar bólusetning fer fram.

Hafið samband við skólahjúkrunarfræðing ef:

  • talið er að barn sé ekki að fullu bólusett
  • óskað er eftir því að barn sé ekki bólusett
  • nánari upplýsinga er óskað

Lesa meira um bólusetningar.

Veikindi og slys

Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæsluna eða slysadeild skulu foreldrar fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í þá á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af heilsuvernd skólabarna.

Langveik börn

Mikilvægt er að skólahjúkrunarfræðingur viti af börnum sem eru með fötlun eða langvinnan eða alvarlegan sjúkdóm, til dæmis sykursýki, ofnæmi, flogaveiki, blæðingarsjúkdóma eða aðra alvarlega sjúkdóma. Hlutverk skólahjúkrunarfræðingsins er að skapa þessum börnum viðeigandi aðstæður og umönnun í skólanum í samvinnu við foreldra og starfsfólk skólans.

Lyfjagjafir

Samkvæmt tilmælum landlæknis um lyfjagjafir í grunnskólum eru sérstakar vinnureglur varðandi lyfjagjafir til nemenda á skólatíma.

Höfuðlús

Höfuðlús birtist reglulega í skólum landsins og er mikilvægt að foreldrar kembi hár barna sinna reglulega yfir skólaárið. Rétt er að láta skólann vita ef lús finnst í hári barns og skólahjúkrunarfræðingur getur leiðbeint varðandi lúsasmit.

Nemendaverndarráð

Foreldrar sem telja að barn þeirra þurfi á stuðningi að halda geta sent tölvupóst til skólastjóra á maria@setbergsskoli.is. Foreldrum er alltaf tilkynnt ef málum barna þeirra er vísað til ráðsins.

Í ráðinu sitja:

  • Jónína Ágústsdóttir, stýrir fundum ráðsins og ritar fundagerðir
  • María Pálmadóttir, skólastjóri
  • Margrét Ólöf Jónsdóttir, aðstoðarskólastjóri
  • Carolin Guðbjartsdóttir, skólahjúkrunarfræðingur
  • Kolbrún Björnsdóttir, náms- og starfsráðgjafi
  • tengiliður barnaverndar eftir þörfum

Umsjónarkennarar og aðrir eru boðaðir til fundar eftir þörfum. Ráðið er bundið þagnarskyldu um einkamál nemenda, að undanskildum atvikum sem ber að tilkynna samkvæmt lögum.

Sálfræðiþjónusta

Sálfræðingur starfar í öllum grunnskólum bæjarins. Sálfræðingur skólans sinnir greiningu, fræðslu, stuðningi og ráðgjöf en ekki meðferð. Tilvísanir til sálfræðings berast í gegnum nemendaverndarráð eða brúarteymi grunnskólans. Samþykki foreldra verður alltaf að liggja fyrir. Tilefni beiðna geta verið margvísleg en áhersla er lögð á snemmtækt mat og greiningu á stöðu nemanda vegna náms, hegðunar og sálrænna erfiðleika.

Sálfræðingur Setbergsskóla er Viktor Díar, viktordiar@hafnafjordur.is, og er hann í skólanum á miðvikudögum eftir samkomulagi og fimmtudögum frá kl. 8–16.

Stuðningskennsla

Stuðningskennsla er ýmist innan eða utan bekkjar og annað hvort stuðningur við nemanda eða nemendahóp. Þarfir hvers og eins nemanda eru hafðar að leiðarljósi við skipulagningu og framkvæmd stuðnings við nemendur með sérþarfir.

Stuðningur felst fyrst og fremst í sveigjanlegu og margbreytilegu námsumhverfi og kennsluháttum sem ætlað er að mæta þörfum allra nemenda. Lögð er áhersla á að nemendur fái nám við hæfi og þeim líði vel í skólanum. Allir nemendur með sérþarfir tilheyra sinni bekkjardeild þó að kennsla einstakra nemenda fari að einhverju leyti fram í sérdeild, námsveri eða sérkennslustofum.

Námsver

Námsverin eru tvö, annað fyrir yngri nemendur og hitt fyrir eldri nemendur. Deildarstjóri stoðþjónustu stýrir námsverunum og vinnur stundatöflur fyrir þau sem þar vinna. Þar starfa þroskaþjálfar, iðjuþjálfi og skóla- og frístundaliðar.

Námsverin eru fyrir nemendur sem eiga erfitt með að stunda nám í stærri hópum eða þurfa mikla einstaklingsaðstoð við nám. Miðað er við að það sé tímabundin ráðstöfun og sett eru markmið um að nemandi geti unnið í stærri námshóp. Þetta á einnig við ef nemandi þarf á félagsfærni eða hegðunarmótun að halda.

Í námsveri fyrir eldri nemendur er líka aðstaða fyrir þau sem eru undanþegin námsgreinum. Þar fá þau aðstoð við nám í kjarnagreinum ásamt heimanámi. Nemendur vinna samkvæmt einstaklings- og stuðningsáætlun sem er ákveðin í samstarfi stuðningsteymis nemandans og foreldra. Í stuðningsteymi eru umsjónarkennari og annað fagfólk, foreldrar, forsjáraðilar og aðrir sem eru virkir í daglegu umhverfi nemandans og nemandinn sjálfur eftir aldri og þroska hans.

Talmeinaþjónusta

Börn sem glíma við frávik í máli eða tali eiga rétt á greiningu talmeinafræðings ásamt sérkennslu og stuðningi við nám í grunnskóla. Talmeinafræðingur veitir einnig ráðgjöf til starfsfólks grunnskóla. Foreldrar geta óskað eftir greiningu og ráðgjöf talmeinafræðings, í öllum tilvikum þarf skriflegt samþykki foreldra að liggja fyrir áður en greining fer fram.