Skólaslit Setbergsskóla og útskrift 10. bekkjar verða föstudaginn 6. júní.

Árgangar mæta á stutta athöfn á sal skólans og fara síðan með umsjónarkennurum í sínar heimastofur þar sem hópurinn er kvaddur. Foreldrar og forráðafólk er að sjálfsögðu velkomið með sínum börnum. Við miðum við að skólinn sé í eina klukkustund.

Kl. 9:00: 1. og 2. bekkur

Kl. 9:30: 3. og 4. bekkur

Kl. 10:00: 5. – 7. bekkur

Kl. 10:30: 8. og 9. bekkur

Útskrift 10. bekkjar fer fram kl. 12:00 á sal skólans.

Léttar veitingar að athöfn lokinni.