Fyrirkomulag skólasetningar er á þá leið að nemendur mæta á sal og þar verður stutt athöfn. Eftir þá athöfn fara nemendur með umsjónarkennurum í heimastofur. Gera má ráð fyrir að nemendur í 2. -3. bekk sé í skólanum í 60 mínútur á skólasetningardegi, aðrir skemur. Kennsla hefst samkvæmt stundarskrá hjá 2. -10. bekk þriðjudaginn 26. ágúst.

  • Kl.8:30 2. og 3. bekkur
  • Kl. 9:00 4. og 5. bekkur
  • Kl. 9:30 6. og 7. bekkur
  • Kl. 10:00 8.bekkur
  • Kl. 10:30 9. og 10. bekkur

Viðtöl verða hjá 1. bekk dagana 25. og 26. ágúst. Skólasetning hjá 1. bekk verður miðvikudaginn 27. ágúst á sala skólans og hefst kl. 8:30. Að lokinni skólasetningu hefst kennsla samkvæmt stundaskrá.

Við hlökkum til samstarfsins við ykkur og hvetjum ykkur til að vera í sambandi við okkur eftir því sem þörf er á.