Þann 6. júní fór fram hátíðleg útskrift 10. bekkjar Setbergsskóla. Alls luku 45 nemendur grunnskólanámi að þessu sinni – frábær hópur sem hefur þroskast, vaxið og lagt sig fram á fjölbreyttan hátt á síðustu árum. Í ræðu skólastjóra kom fram hve mikilvæg þessi tímamót eru – þar sem nemendur kveðja grunnskóla og hefja nýjan kafla í lífi sínu. Minnt var á að heimurinn sem þau stíga inn í sé bæði spennandi og krefjandi, þar sem gildi á borð við virðingu, víðsýni og vellíðan skipta sköpum. Þessi gildi hafa verið rauður þráður í skólastarfinu og eru dýrmætt veganesti út í framtíðina. Sérstakar þakkir voru færðar umsjónarkennurum, öðru starfsfólki skólans og foreldrum fyrir samvinnu og stuðning á þessari mikilvægu vegferð nemenda. Einnig var minnst á eftirminnilega leiklistaruppfærslu nemenda – School of Rock – þar sem hæfileikar og lífsgleði nemenda fengu að njóta sín. Við í Setbergsskóla erum stolt af útskriftarnemum okkar og óskum þeim farsældar í því sem fram undan er. Til hamingju með áfangann, kæru nemendur! Viðurkenningar fyrir námsárangur í bóklegum greinum, list- og verkgreinum, vaxandi hugarfar og þrautseigju hlutu: Matthildur Lea Skagfjörð fyrir dönsku Bjarni Snær Guðmundsson fyrir ensku Júlian Ingi Ingibjörnsson fyrir íslensku Breki Páll Jónsson fyrir samfélagsgreinar Jana María Valberg fyrir náttúrugreinar Karen Kristinsdóttir fyrir íþróttir Sindri Dan Vignisson fyrir íþróttir Erla Lilja Ísleifsdóttir fyrir stærðfræði Sigrún Laura Thoroddsen fyrir leiklist Unnur Kristín Árnadóttir fyrir vaxandi hugarfar, framfarir og hugrekki Alex Hlyns fyrir framúrskarandi árangur í myndlist Deila Tísta