Senn líður að lokum þessa skólaárs. Skólaslit fyrir nemendur í 1. – 9. bekk hefjast með stuttri samveru á sal skólans en nemendur fara því næst í heimastofur með umsjónarkennurum og kveðjast þar.
Eins og áður hefur komið fram í pósti til foreldra barna í 1. – 4. bekk er Krakkaberg lokað þennan dag vegna skipulagsdags.

Tímasetningar skólaslita:
– 1. og 2. bekkur kl. 9:00.
– 3. og 4. bekkur kl. 9:30.
– 5. – 7. bekkur kl. 10:00.
– 8. – 9. bekkur kl. 10:30.

Útskrift 10. bekkinga fer fram við hátíðlega athöfn kl. 12:00 og er gert ráð fyrir að athöfnin taki rúma klukkustund. Boðið verður upp á léttar veitingar að athöfn lokinni.

Við vonumst til að sjá sem flesta foreldra og forráðamenn við allar þessar athafnir.

Með góðri kveðju og þökk fyrir samstarfið á skólaárinu,
stjórnendur og starfsfólk Setbergsskóla.

Skólalok nálgast – sjá nánar um tímasetningu skólaslita