Afrakstur vinnu á þemadögunum var til sýnis. Mikill fjöldi fólks lagði leið sína til okkar og var afskaplega gaman að sjá ykkur öll.

Í dag var foreldrum boðið til að koma og skoða afrakstur vinnu á þemadögunum sem fram hafa farið í vikunni. Mikill fjöldi fólks lagði leið sína til okkar og var afskaplega gaman að sjá ykkur öll.

Hægt er að sjá nokkrar myndir af verkefnum nemenda á Facebook síðu skólans.

Páskafrí er í skólanum í næstu viku. Við mætum hress og kát kl 8.30 þriðjudaginn 2.apríl.

Gleðilega páska!