Mánudaginn 15. apríl mun Skúli B. Geirdal fjölmiðlafræðingur og verkefnastjóri hjá Fjölmiðlanefnd halda fræðsluerindi fyrir nemendur í 4.-10. bekk á skólatíma og fyrir foreldra og forráðamenn kl.19:30. 12.4.2024 Fræðsla um netöryggi- símalaus apríl Mánudaginn 15. apríl mun Skúli B. Geirdal fjölmiðlafræðingur og verkefnastjóri hjá Fjölmiðlanefnd halda fræðsluerindi fyrir nemendur í 4.-10. bekk á skólatíma og fyrir foreldra og forráðamenn kl.19:30. Fræðsluerindin eru: Netumferðarskólinn -4. – 7. bekkur Fræðsluerindið er blanda af fyrirlestri, hópverkefni og samtali við börnin þar sem áherslan er á vitundarvakningu, hugtakaskilning og valdeflingu. Ef þú borgar ekki fyrir vöruna þá ert þú varan – 8.- 10. bekkur Þar verður m.a. fjallað um: · Hvers virði eru upplýsingarnar um okkur og hvað greiðum við fyrir aðgang okkar að samfélagsmiðlum? · Mikilvægi þess að vera læs á upplýsingar og miðla í nútíma samfélagi. · Hvernig virka algóritmar samfélagsmiðlanna? · Hvað þarf að hafa í huga varðandi samskipti á netinu, áreitni frá ókunnugum og deilingu mynda? · Hvaða aldurstakmörk eru á samfélagsmiðlum og af hverju? Algóritminn sem elur mig upp – Foreldrar og forráðamenn · Farið verður yfir atriði í stafrænu umhverfi sem ber að varast auk þess að gefa góð ráð varðandi notkun barna á skjátækjum og samfélagsmiðlum. · Hvað þarf að hafa í huga varðandi samskipti á netinu ? · Hvaða aldurstakmörk eru á samfélagsmiðlum og af hverju? · Er upplýsingaóreiða og skautun vandamál í íslensku samfélagi? · Hvað áhrif mun gervigreindin hafa á okkar stafrænu tilveru á næstu árum? Deila Tísta