Fyrirkomulag skólasetningar er á þá leið að nemendur mæta á sal og þar verður stutt athöfn. Eftir þá athöfn fara nemendur með umsjónarkennurum í heimastofur. Gera má ráð fyrir að nemendur í 2. – 3. bekk séu í skólanum í 60 mínútur á skólasetningardegi, aðrir eru skemur. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá hjá 2. – 10. bekk mánudaginn 26. ágúst. · Kl. 8:30 2. og 3. bekkur · Kl. 9:00 4. og 5. bekkur · Kl. 9:30 6. og 7. bekkur · Kl. 10:00 8. bekkur · Kl. 10:30 9. og 10. bekkur Foreldraviðtöl verða hjá 1. bekk dagana 23. og 26. ágúst. Skólasetning hjá 1. bekk verður þriðjudaginn 27. ágúst á sal skólans og hefst kl. 8:30. Að lokinni skólasetningu hefst kennsla samkvæmt stundaskrá. Við hlökkum til samstarfsins við ykkur og hvetjum ykkur til að vera í sambandi við okkur eftir því sem þörf er á. Deila Tísta