Fræðslukvöld með sálfræðingum Hafnarfjarðarbæjar fyrir foreldra og forsjáraðila barna og ungmenna á leik- og grunnskólaaldri um hegðun og líðan. Fræðslukvöld fyrir foreldra, forsjáraðila og öll áhugasöm Fræðslukvöld með sálfræðingum Hafnarfjarðarbæjar fyrir foreldra og forsjáraðila barna og ungmenna á leik- og grunnskólaaldri um hegðun og líðan. Markmiðið er að þátttakendur gangi út með hagnýt ráð og hjálpleg viðbrögð í uppeldinu. Leitast verður við að svara spurningum eins og: Hvað er hegðun? Hvað er hægt að gera þegar barn sýnir krefjandi hegðun? Hvað er kvíði? Hver eru hjálpleg viðbrögð við kvíða barna? Hvert get ég leitað eftir aðstoð? Bára Fanney Hálfdánardóttir, Bergþóra Ragnarsdóttir og Svandís Gunnarsdóttir halda utan um kvöldstundina. Þær starfa allar sem sálfræðingar hjá mennta- og lýðheilsusviði Hafnarfjarðarbæjar þar sem þær sinna greiningum og ráðgjöf til foreldra og skóla. Fræðslan fer fram í Bæjarbíó þriðjudaginn 15. október kl. 20. Saman erum við þorpið – vertu með! Deila Tísta