Hafnarfjarðarbær boðar til opins íbúafundar með ungmennum, fjölskyldum og öllum áhugasömum um eigin málefni, líðan og öryggi. Hafnarfjarðarbær boðar til opins íbúafundar með ungmennum, fjölskyldum og öllum áhugasömum um eigin málefni, líðan og öryggi. Fundurinn verður haldinn í Bæjarbíó þriðjudaginn 8. október kl. 17:30. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri opnar samtalið. Eva Mattadóttir stýrir stundinni, samtali og umræðum og verður áhersla lögð á að gestir geti komið hugmyndum sínum og skoðunum á framfæri með skilvirkum og gagnvirkum hætti. Markmiðið er að safna saman hugmyndum og tillögum að aðgerðum sem snúa að öryggi og vellíðan barna og ungmenna í „þorpinu“ sínu. Í pallborði sitja fulltrúar frá ungmennum, lögreglu og sveitarfélagi og hefst umræðan með sterkum skilaboðum frá hverju og einu þeirra til gesta í sal. Tölum saman og látum hugmyndirnar flæða. Hugmyndir og tillögur frá fundi verða lagðar fram til umræðu í fræðsluráði og fjölskylduráði og verða fóður í fyrirhugaða fundi, aðgerðaáætlun og forgangsröðun forvarnarverkefna. Þessi fundur er fyrsti upphafsfundur fyrirhugaðrar fundaraðar Hafnarfjarðarbæjar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar um málefni barna og ungmenna, líðan þeirra og öryggi. Til fundarins eru sérstaklega boðaðir foreldra barna í Hafnarfirði upp að 18 ára aldri og hafnfirsk ungmenni sem vilja taka þátt í opinni umræðu og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Meiri upplýsingar um atburðinn má finna ér: https://www.facebook.com/events/1267460721081453 Saman erum við þorpið. Vertu með! Deila Tísta